Vil skilja sáttur við KR

Logi Ólafsson, þjálfari KR, tjáði miðjumanninum Bjarnólfi Lárussyni það á dögunum að hann væri ekki inni í framtíðaráætlunum sínum og honum væri þar af leiðandi frjálst að róa á önnur mið. Bjarnólfur hefur því leikið sinn síðasta leik fyrir KR en hann hefur verið í herbúðum félagsins síðustu þrjú ár„Þessi tíðindi komu mér nokkuð á óvart en ég virði ákvörðun Loga og er sáttur við að menn komi hreint fram. Þannig að þetta er alveg í góðu af minni hálfu og ég legg mikið upp úr því að fara sáttur frá félaginu,” sagði Bjarnólfur en hann á tvö ár eftir af samningi sínum við félagið.

Hann verður ekki seldur til annars félags heldur er stefnan að ganga frá starfslokasamningi en vinnan við hann er ekki hafin.

„Ég tek svo stöðuna á mínum málum þegar ég hef skilið endanlega við KR. Það hefur verið ágætt að hvíla sig eftir mjög erfitt sumar. Ég er í raun ekkert farinn að spá í framhaldið og er alls ekki að flýta mér neitt. Ég er enn á byrjunarreit og hef ekkert spáð í hvert ég fari eða hvort ég haldi áfram.

Það er margt annað sem ég er að gera og ég þarf að spá í mörgum hlutum áður en ég tek einhverja ákvörðun um framhaldið,” sagði Bjarnólfur en hann neitar því ekki að síðasta sumar hafi tekið sinn toll.

„Það tók mjög mikið á. Ekki bara síðasta sumar heldur síðustu tvö ár þar sem gengið hefur verið misjafnt og mikið æft líka. Það er kominn tími á smá hvíld núna og ég ætla ekkert að taka neina ákvörðun um mína framtíð fyrr en eftir áramót. Ég stend á ákveðnum tímamótum og þarf að skoða vel í hvað ég vilji eyða tíma mínum í framtíðinni.”

Bjarnólfur kom á sínum tíma til KR frá ÍBV en það var Magnús Gylfason sem fékk Bjarnólf til félagsins eftir að hafa þjálfað hann í Eyjum. Þrátt fyrir oft og tíðum erfiða tíma sér Bjarnólfur ekki eftir því að hafa komið til KR.

„Alls ekki. Þetta er búinn að vera skemmtilegur tími þó svo að þetta hafi oft verið erfitt. Ég hefði viljað sjá betri árangur KR á þessum tíma. Hér hef ég aftur á móti kynnst mikið af góðu fólki og séð margt gott í kringum félagið. Ég hef notið þess að vera í KR og vil skilja í góðu við félagið,” sagði Bjarnólfur en er hann sáttur við eigin frammistöðu hjá félaginu?

„Já og nei. Ég hefði viljað gera betur að mörgu leyti en mér fannst ég standa mig ágætlega á köflum. Það hefur ekki verið auðvelt að spila fyrir KR og ég get ekki neitað að þetta hefur ekki gengið eins vel og ég vonaðist til þó svo að ég sé ekki ósáttur við mitt framlag,” sagði Bjarnólfur Lárusson.

Nýjustu fréttir

Standa þarf vörð um hafrannsóknir
Stórseiðahús reist á aðeins tíu mánuðum
Hafró leggur til minni þorskkvóta en mikla aukningu í loðnu
Leiðin liggur á Eyjuna fögru
Enn að eftir 40 ár sem blaðamaður
Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.