Herjólfur 3. vs. Herjólfur 4.
27. júlí, 2021

Það er komið meira en ár síðan ég lofaði því að fjalla aðeins um þessi 2 skip og bera þau síðan saman og þar sem Herjólfur 3. er kominn á sölu er kannski tímabært að gera það núna.

Byrjum á byrjuninni

Herjólfur 3. er þrítugur núna í sumar og ýmislegt gekk nú á, bæði í aðdragandanum að komu hans og svo í fyrstu prufusiglingum. 

Fyrst ber að nefna náttúrulega ákvörðun þáverandi samgönguráðherra um að stytta skipið, sem sumir telja að hafi gert það verra eftir á, og á tímabili var Herjólfur 3. kallaður “Manndrápsfleytan”. 

Á hringferðinni sem farin var í kring um landið til að kynna skipið kom í ljós, að skipið valt alveg gríðarlega þegar búið var að taka inn veltiuggana. Þetta mál var að hluta til leyst haustið 93 þegar Herjólfur fór til Noregs, þar sem ýmislegt var lagfært og endurbætt og m.a. settir undir hann andveltikilir og segja þeir sem þekkja til, að þetta hafi stórlega bætt sjóhæfni skipsins, en í hringferðinni hinni frægu lenti Herjólfur 3. í svo slæmum sjó utan við Hornafjörð, að allt fór á hvolf í eldhúsinu og m.a. sprakk sultutunna og fleira inni á lager skipsins og á tímabili kom upp leki efst í skipinu og eftir því sem mér er sagt, var þar ökkladjúpt vatn þegar að var komið. Ýmislegt annað hefur að sjálfsögðu komið upp á, en ég læt þetta duga, en Herjólfur 3. hefur reynst okkur vel, þó svo að aldurinn sé svo sannarlega farinn að færast yfir og margir muni sakna skipsins.

Herjólfur 4.

Eins og gengur og gerist með ný skip, þá slapp Herjólfur 4. ekki við byrjunarörðugleika, en á leiðinni til landsins bilaði annar uggi skipsins, þannig að það varð að byrja á því að fara í slipp. Ekki voru tilbúin fríholtin við bryggjurnar og ekki hleðslustöðvarnar þegar hann kom, en þetta er allt saman komið í dag. 

Framan af var mikið um að aftur og/eða framlúga ekki opnaðist eða lokaðist, en þetta er sem betur fer líka búið að leysa. Bekkir á sóldekki losnuðu, þá er búið að sjóða fasta. Pilothurð gekk inn, en það er búið að laga hana. Spilbúnaður hefur brotnað, eða réttara, festingar á spilbúnaði. Taka þurfti öll batterí í skipinu í gegn og skipta um skífur í þeim. Aðstaða í eldhúsinu var ekki fullnægjandi, en það er búið að laga, einnig hefur vantað töluvert upp á aðstöðu fyrir áhöfnina, sérstaklega þegar siglt er til Þorlákshafnar og í skveringunni sl. haust var ákveðið að fara yfir annan drifbúnaðinn og eftir að hann hafði verið tekinn í gegn, var ákveðið að taka hinn líka. 

Það góða við þetta allt saman er, að þetta eru allt meira og minna allt vandamál sem eru að baki, en það tók töluverðan tíma fyrir áhöfnina að læra á td. öll tölvukerfi skipsins, enda er þetta nútíma skip og með nemum út um allt. 

Ýmislegt annað mætti nefna, en ég ætla að láta þetta duga í bili.

Herjólfur 3. vs. Herjólfur 4.

Það er svolítið erfitt að svara því, hvort skipið er betra, þó að flestir myndu nú segja að það væri augljóst þegar borið er saman annarsvegar nýtísku rafmagnsferja og 30 ára gamalt skip, en það eru plúsar og mínusar báðum megin. 

Margir höfðu áhyggjur af því, hvernig Herjólfur 4. myndi standa sig í siglingum til Þorlákshafnar, verandi svona grunnrist skip, en þær áhyggjur eru í raun og veru að mestu leyti að baki, enda skipið alveg sérstaklega stöðugt, þó svo að það láti að sjálfsögðu illa í vondum brælum, eins og önnur skip, en aðal ástæðan fyrir því, hversu sá nýi er stöðugur er einmitt miklu stífari stöðugleika reglur þegar hann er smíðaður, heldur en sá gamli. 

Sama má segja um bíladekkið, en bíladekkið á þeim nýja er einfaldlega klössum betra heldur en á þeim gamla að öllu leyti.

Stærstu áhyggjur mínar hins vegar voru þær, að svefnrými í þeim nýja væri þá mikið færri heldur en í þeim gamla. Það hefur algjörlega gengið eftir, þó svo að kojum hafi verið bætt við í þeim nýja þá nálgast hann ekki þeim gamla að þessu leyti vegna þess, að það er líka hægt að nota bekkina í þeim gamla til að leggja sig, en ekkert slíkt er í þeim nýja. 

Sama gildir um ganghraðann á skipunum, en mér þótti það mjög sérstakt að hér væri verið að smíða nýtísku ferju, að hún gengi aðeins hægar heldur en 30 ára gömul ferja. 

Margir hafa kvartað um þrengsli á milli sætisraða í þeim nýja og eins, hversu erfitt sé að komast í kojurnar í skipinu, en þar sem við siglum mun oftar til Landeyjahafnar á þeim nýja, þá má segja að þetta jafni sig út.

Í sjálfu sér er kannski engin ein niðurstaða um hvort skipið sé betri að öllu leyti, en að sjálfsögðu gríðarlega margt í nýju ferjunni sem gerir hana mun betri en þann gamla, eðlilega, en það er þó þetta atriði varðandi klefana og svefnaðstöðuna í þeim gamla, sem gerir hann betri að því leytinu amk.

Fólkið okkar

Á síðasta ári fór áhöfnin á Herjólfi í stutt verkfall á mjög vondum tíma fyrir okkur öll, en það er nú einu sinni þannig að verkföll hafa alltaf bitnað á þeim sem síst skyldi, en mér fannst sumir hér í bæ ganga ansi langt í gagnrýni sinni á áhöfnina og maður varð eiginlega hálf miður sín að sjá hvernig sumir létu, því að sjálfsögðu á áhöfnin sinn rétt, eins og við öll hin og gleymum því ekki, að þetta er fólkið okkar. Mest megnis fjölskyldufólk sem þarf að standa við sínar skuldbindingar eins og við öll hin, en er um leið líka fólkið sem heldur þessari dýrmætu samgönguleið okkar opinni allt árið, alveg sama hvernig viðrar.

Þakkir

Við þekkjum nú öll fólkið sem starfað hefur þarna umborð í fjölda mörg ár, en nokkuð hefur verið um það núna, sérstaklega síðustu 2 árin, að fólk hafi hætt bæði vegna aldurs eða til þess að hverfa til annarra starfa og þó svo að ég þekki nú ekki öll nöfnin og biðst nú afsökunar á því, þá langar mig að telja upp nokkur nöfn, vonandi fer ég rétt með?

Ágústa Magnúsdóttir

Ágústa Kjartansdóttir

Kristín Guðjónsdóttir

Einar Jónsson

Gísli Guðnason

Einar Magnússon

Heiðar Páll Halldórsson

Eðvald Sigurðsson

Elliði Aðalsteinsson

og fleiri og fleiri mætti nefna, en mig langar að lokum að nefna vin minn Guðlaug Ólafsson, skipstjóra, en maður saknar þess oft að heyra ekki glaðlegu röddina hans, enda alltaf hress og kátur.

Takk öll fyrir frábært starf í gegnum árin, sum fleiri en önnur og gangi ykkur öllum allt í haginn hvað sem þið takið fyrir stafni.

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Forsida 11 Tbl 2025
11. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.