47 ár frá upphafi gosins í Vestmannaeyjum - Nú þarf Flateyri slíkan stuðning

Í dag eru 47 ár frá upphafi gossins á Heimaey. Þessi dagur gerir mig ætíð tilfinningasaman og við fjölskyldan höfum það sem venju að gera okkur dagamun.  Við, eins og svo margir minnumst þess  þegar jörðin rifnaði í jaðri byggðarinnar í Vestmannaeyjum og glóandi hraun vall úr.  Ég var þá fjögurra ára og sá náttúruhamfarirnar þeim augum.  Myndin sem tekin var af mér þegar ég var nývaknaður þessa örlaganótt kemur mér oft í hug.  Hún minnir mig á að að styrkur foreldra minna og æðruleysi þeirra komu í veg fyrir allan ótta.  Nóttin og komandi mánuðir voru sama merki settir.

Einn hrikalegast atburður sem orðið hefur í sögu landsins.

Í dag skil ég hins vegar hversu litlu mátti muna að verr færi. Í ávarpi sínu við upphaf gossins sagði þáverandi biskup að varla hefði í annan tíma jafn mikill voði vofað yfir jafn mörgum Íslendingum á sama andartaki og þá nótt. Gosið á Heimaey væri einn hrikalegasti atburður sem orðið hefði í sögu landsins. Það voru vafalaust orð að sönnu og svo sárt sem þessi atburður lék marga þá var mikil sú mildi að ekki varð frekara tjón á lífi íbúa, björgunarmanna og framtíð byggðar.

 

Gosið var Eyjamönnum erfitt

Þeir sem ekki upplifðu þessa atburði hljóta að eiga erfitt með að skilja þær tætingslegu tilfinningar sem við Eyjamenn berum enn í dag til þessara hamfara. Ég hef áður haldið því fram að gosið hafi verið okkur Eyjamönnum erfiðara en seinni tíma söguskýring hefur viljað vera láta.  Eftir því sem ég hef orðið eldri hefur sú skoðun mín styrkst.  Eftir sem áður ber ég mikla og djúpa virðingu fyrir því viðhorfi sem oftast var haldið að mér sem barni og fólst í því að ræða þetta ekki of djúpt.

 

Heimsviðburður við svefnherbergisgluggann

Það er alveg ljóst að Heimaeyjagosið 1973 er stærsti einstaki atburðurinn í mínu lífi. Hvernig á annað að vera þegar maður sem fjögra ára gamalt barn horfir á heimsviðburð í örfárra tugi metra fjarlægð út um svefnherbergisgluggann heima hjá sér? Um miðja nótt máttu foreldrar mínir forða sér út úr nýbyggðu húsi þeirra, móðir mín þá ólétt af yngri bróður mínum, og halda til skips. Þar tók við sigling út í algera óvisssu með þá spurningu á vörunum hvort nokkru sinni yrði aftur snúið heim. Pabbi var megnið af gosinu í Eyjum við björgunarstörf en við mamma bjuggum megnið af tímanum í Stóra-Dal hjá föðurfólki mínu og í Grindavík hjá móðursystur minni. Maður skilur það þegar maður verður eldri hversu gríðarlegt álag þetta hefur verið fyrir Eyjamenn. Óvissan, röskunin, hættan og bjargarleysið hlýtur að hafa verið algert.

 

Einstök reynsla

Það er mér til þessa dags óskiljanlegt að fólk skuli hafa haft þetta af og hvað þá að hlífa okkur börnunum við þessu. Í minni minningu er gosið nánast eins og ævintýri. Ég man gosnóttina, ég man flatsængur í Grindavík og ég man eftir bíltúrum í sveitinni þar sem fylgst var með bjarmanum og vöngum velt yfir því hvað pabbi væri að gera á þeirri stundu. Að snúa heim til Eyja var fyrir fjögra ára barn eins og að flytja á tunglið. Allt var þakið ösku og hvergi grænan blett að sjá. Leiksvæðið var því bæði stórt, ókannað og spennandi. Fólk sem á sér jafn stóran viðburð sameiginlegan hlýtur að mótast af honum.

 

Ekki dvalið við vandamálin

Eyjamenn, eins Íslendingar almennt, dvelja ekki lengi við vandamálin en snúa þeim í verkefni. Með því er ekki lítið gert úr voðanum og þjáningunum. Hjá því verður ekki horft að Eyjamenn urðu að hverfa í hendingskasti frá heimilum sínum með fátt annað með sér en fötin sem þeir klæddust  Ógnin var nálæg, auðskiljanleg og meðvituð. Eignatjónið varð gríðarlegt og við tóku tímar fullkominnar óvissu. Fjölskyldur tvístruðust og fréttirnar sem bárust af heimahögum voru oftar en ekki þungbærar.

 

Samfélög byggð á kjarki

Nú í kjölfar snjóflóða á vestfjörðum sér maður glöggt þann kjark sem leysist úr læðingi í litlum og nánum samfélögum við náttúruhamfarir.  Hann er hreint magnaður sá kjarkur sem íbúar búa yfir þegar á reynir.  Það þarf í senn æðruleysi og ríka ást á sínu samfélagi þegar ráðist er í að endurreisa og viðhalda samfélagi í kjölfar hamfara.  Að velja að takast á við það risavaxna verkefni að byggja á nýi sinn bæ.  Hreina hann ösku eða snjó og eignast á ný það samfélag sem er þeim svo kært. Að taka tafarlaust í sátt þá óblíðu náttúru sem ógnað hafði bæði lífi og eignum. Að veðja á rjúkandi eldfjallaeyju eða fjörð með snar bröttum og oft snæviþöktum hlíðum sem framtíð sína og sinnar fjölskyldu. Undir gunnfánum samheldninnar sneru Eyjamenn aftur og byggðu það fyrirmyndarsamfélag sem í dag á sér ekki hliðstæðu. Það þurfti kjark, dáð og þor til að endurreisa byggð í Eyjum. Af því áttu Eyjamenn nóg til að takast verkefnið.  Það sýnir hvað hægt er að gera með samtakamætti og utanaðkomandi stuðningi.

 

 Samhugur og drengskapur

Ár hvert nota ég og mín fjölskyld 23. janúar til að staldra við og minnast þessara ótrúlegu atburða.  Það ætlum við einnig að gera í dag. Við þökkum þá guðsmildi að ekki hafi farið verr og hversu vel þó tókst við hrikalegar aðstæður. Í hörmungunum sýndi hin íslenska þjóð hvers hún er megnug. Samhugurinn og drengskapurinn var alger. Fyrir það er ég þakklátur Íslendingum öllum. Á sama hátt réttu vinaþjóðir okkar Íslendinga Eyjamönnum hjálparhönd, bæði í gosinu og því ógnvænlega verkefni sem við tók í kjölfar þess. Það voru vinahót sem Eyjamenn gleyma aldrei.  Það eru vinahót sem Vestfirðingar og þá sérstaklega íbúar á Flateyri þurfa nú.

Ellidi.is

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.