5:0 tap gegn Stjörnunni
Stjarnan lék á als oddi í fyrri leik dagsins í Pepsi-deild karla. Eftir jafntefli gegn Grindavík í fyrstu umferð vildu þeir vinna í dag. Fotbolti.net greinir frá.
Fyrsta markið kom strax eftir sex mínútur þegar Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði úr vítaspyrnu. Leikmenn ÍBV voru alls ekki sáttir við vítaspyrnudóminn, en það er dómarinn sem dæmir.
Í kjölfarið bættu Stjörnumenn við tveimur mörkum fyrir hlé; fyrst skoraði Jósef Kristinn Jósefsson eftir langa sókn og síðan bætti Hólmbert Aron við öðru marki sínu með dúndurskoti.
Í upphafi seinni hálfleiks misstu heimamenn Hólmbert Aron af velli, en það kom ekki að sök. Hilmar Árni Halldórsson gerði fjórða mark Stjörnunnar á 70. mínútu áður en Guðjón Baldvinsson bætti við fimmta markinu í uppbótartíma.
Lokatölur í Garðabænum í dag, 5-0 fyrir Stjörnuna. Stjarnan er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina, en ÍBV er með eitt.

Nýjustu fréttir

Fagnar skilaboðum ráðherra um varamótora
Kótilettur til góðs í Höllinni
Æfðu viðbrögð við eldsvoða í Kjarnanum
Aglow-konur hittast í kvöld
Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.