900 Grillhús býður upp á afsláttarkort til minningar um Loft Gunnarsson
Hólmgeir Austfjörð, eigandi veitingastaðarins 900 Grillhús hefur ákveðið að selja 100 VIP kort en með kortunum verður hægt að fá afslætti í verslun og þjónustu víðs vegar um landið. Fjölmargara verslanir og þjónustufyrirtæki taka þátt í átakinu en kortið eru seld á 5.000 krónur og rennur allur ágóði kortanna í minningarsjóð Lofts Gunnarsson, sem varð úti í Reykjavík á þessu ári. �??900 Grillhús hefur ákveðið að bjóða uppá 100 VIP kort, kortunum verður ekki úthlutað til vina eða náinna ættingja. 900 VIP er góðgerðarstarf og allir hafa jafnan séns á að eignast kort hafi þeir áhuga á því,�?? segir á heimasíðu 900 Grillhúss.
Skilmálar kortsins
Gegn framvísun kortsins færðu 20% afslátt af mat og 10% af tilboðum í sal hjá 900 Grillhús.
Alla fimmtudaga er 2-1 af kranabjór hjá 900 Grillhús.
Happyhour milli kl 22:00-23:00 föstudag og laugardag af uppáhalds drykk korthafa hjá 900 Grillhús.
Kortið gildir einungis fyrir skráðan eiganda og maka og börn.
Afsláttur gildir fyrir korthafa og gesti hans ef korthafi borgar fyrir allt borðið.
Ef korthafi borgar einungis fyrir sjálfan sig er 10% afsláttur fyrir gesti korthafa.
Kortið má ekki lána öðrum.
�?ll kort verða skráð á eiganda sinn til að koma í veg fyrir misnotkun.
Kortið gildir einungis í eitt ár í senn.
þessar reglur gilda einungis á 900 Grillhús, önnur fyrirtæki sem gefa afslætti askilja sér rétt til að búa til eigin reglur.
Eftirtalin fyrirtæki taka þátt í ævintýrinu okkar og styrkja í leiðinni gott málefni. Ef þú vilt bæta fyrirtækinu þínu hér inn er bent á að senda póst með því að smella hér eða hafa samband í síma: 891-9211
Vestmannaeyjar
Smart 10%nema ísl hönnun
Axel �? 10% af öllum vörum
Flamingo 10% af öllum vörum
Vilberg 10% af öllum vörum
66 Norður (Eyjum) 10% af öllum vörum
Volare barnaborg 10% af öllum vörum
Hárstofa Viktors 20% af mens vörum
Aroma snyrtistofa 10% af kanebo vörum
Póley 10% af öllum vörum
Eyjavík 15% af öllum vörum
Hressó 20% af ljósakorti og 20% af ultratone
Bk gler 10% af öllum vörum
Penninn (Eyjum) 20% af töskum
Miðstöðin 5% aukaafsláttur af málningartilboðum
Nuddstofa Sonju 5000kr afsl af 10 tíma kortum
Snyrtistofa Ágústu 15% af andlitsmeðferðum
Geisli 10% af Home Art vörum
Prentsmiðjan Eyrún 25% af 10km róðri og frítt Arsenal spjall
Active 20% af healt & beaty snyrtivörum
Áhaldaleigan 5-10% stgr (mismunandi eftir vörum)
Hjólbarðastofan 20% af vinnu.
Bílaverkstæði Muggs 10% af vinnu
Ribsafari 10% af öllum ferðum
Kakadú 10% afsláttur af kertum
Hörður og Matti 10% af vinnu
Einsi kaldi 10% af mat
Dísó Hárgreiðslustofa 10% af vörum
Sjón gleraugnaverslun 12% af vörum
Reynistaður 10% af völdum vörum
Miðbær 10% af snyrtivörum
Volcano Cafe 2-1 af bjór milli 23-24 föst og laug
Bragginn sf. 10% af vinnu
Húsavík
Veitingahúsið Salka 20% af mat
Gentle Giants hvalaskoðun 10% af hvalaskoðun
Húsavík Cape Hotel 20% afsláttur
Húsavík Guesthouse 20% afsláttur
The Exploration Museum 25% afsláttur af aðgangseyri
Húsavík Hostel 15% afsláttur
Mývatnssveit
Mývatn Road Guesthouse 10% afsláttur
Akureyri
Besti bitinn 10% af mat
Greifinn 10% af mat fyrir kl 17:00
Selfoss
Tryggvaskáli 10% af mat
Sauðárkrókur
�?lafshús 20% af pizzum
Höfuðborgasvæðið
Hamborgarafabrikkan 10% af mat fyrir kl 17:00
KOPAR 10% af mat
Roadhouse 10% af mat
Suzushii 10% af mat
Keiluhöllin �?skjuhlíð 15% af keilu og mat
Keiluhöllin Egilshöll 15% af keilu og mat
Gokart.is 25% af öllum ferðum
Fiskifélagið �?? 15% af mat í hádegi og á kvöldin alla virka daga
Ef þú vilt leggja þitt af mörkum í baráttunni við bættan aðbúnað útigangsmanna í Reykjavík þá er reikningur sjóðsins 318-26-5171 kt. 4611120560

Nýjustu fréttir

Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.