Ís­fé­lagið kaupir yfir 8 milljarða hlut í Ice Fish Farm
8. mars, 2023

Ísfélag Vestmannaeyja, eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki Íslands, hefur náð samkomulagi um kaup á tæplega 16% hlut í fiskeldisfyrirtækinu Ice Fish Farm AS, sem hét áður Fiskeldi Austfjarða. Ætla má að kaupverðið hafi verið nálægt 650 milljónum norskra króna, eða um 8,6 milljörðum íslenskra króna. Þetta kemur fram í frétt á vef Viðskiptablaðsins.

Þar segir að verðið í viðskiptunum miðar við 43 norskar krónur á hlut sem er um 65% yfir dagslokagengi Ice Fish Farm í gær. Markaðsgengi fiskeldisfyrirtækisins, sem er skráð á norska Euronext-markaðinn, hefur hækkað um meira en 30% frá opnun markaða í dag og stendur nú í 34,3 norskum krónum.

Ísfélagið kaupir hlutina af Måsøval Eiendom, stærsta hluthafa Ice Fish Farm sem átti fyrir viðskiptin 56% hlut. Viðskiptin fela í sér að eignarhlutur Måsøval Eiendom verður færður inn í nýstofnaða félagið Austur Holding AS, sem Ísfélagið mun eiga 29,3% í.

Í kauphallartilkynningu segir að félögin tvö hafi samþykkt að skrá sig fyrir hlutum í fyrirhugaðri hlutafjáraukningu Ice Fish Farm upp að því marki að viðhalda 56% samanlögðum eignarhlut í fiskeldisfyrirtækinu.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.