Afturelding hafði betur og nánast öruggir með efsta sætið

�?að var sjaldan að fleiri en eitt mark skildu liðin að en í hálfleik var jafnt 15:15. Framan af síðari hálfleik var jafnt á öllum tölum en Bjarki Sigurðsson, þjálfari Aftureldingar tók þá til þess ráðs að skipta sjálfum sér inn á. Fljótlega eftir það náðu gestirnir undirtökunum, náðu mest þriggja marka forystu en um tíma var um skotkeppni að ræða á milli Bjarka og fyrirliða ÍBV, Sigurð Bragason. Sigur Aftureldingar var að lokum nokkuð öruggur þó aðeins munaði einu marki í lokin, Eyjamenn áttu reyndar veika von en gestirnir léku skynsamlega undir lokin.

Markahæstir hjá ÍBV voru þeir Sigurður Bragason með 15 mörk, þar af fimm úr vítum og Grétar �?ór Eyþórsson skoraði 6. Markverðir ÍBV náðu sér ekki á strik, vörðu aðeins samtals ellefu skot.

Töpuðu fyrir Fram á heimavelli
Fyrr í dag fór fram leikur ÍBV og Fram í DHL deild kvenna en liðin sátu fyrir leikinn í fimmta og sjötta sæti. Leikurinn var mikilvægur fyrir Eyjastúlkur sem fyrir leikinn voru aðeins einu stigi á eftir Haukum sem eru í fjórða sæti en fjögur efstu liðin komast í deildarbikarkeppnina að Íslandsmótinu loknu. En skrautfjaðrirnar hafa verið að reytast af liði ÍBV að undanförnu, skyttan Valentina Radu og markvörðurinn Branca Javonovic voru ekki með og Renata Kári Horvath er aðeins skugginn af sjálfum sér vegna veikinda. Leikmannahópur ÍBV er vægast sagt mjög þunnur, þannig léku í dag stórt hlutverk hjá Íslandsmeisturunum þrír leikmenn úr unglingaflokki og einn leikmaður úr fjórða flokki.

Framstúlkur höfðu greinilega kortlagt einhæfan sóknarleik ÍBV því Pavla Plaminkova var nánast klippt út og fyrir vikið gekk sóknarleikurinn afar illa. Í hálfleik var staðan 11:12 en lokatölur urðu 20:22 í frekar döprum handboltaleik.

Markahæstar hjá ÍBV voru þærPavla Plaminkova með sex mörk, þar af þrjú úr vítum, Hekla Hannesdóttir skoraði fimm og Sæunn Magnúsdóttir fjögur. �?á varði hin 18 ára gamla Ecaterina Dzkukeva fimmtán skot, þar af eina víti.

Nýjustu fréttir

Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Bæjarráð samþykkir að selja hlut í Landsbankanum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.