Fjárfest í sól og betri lífsgæðum
11. maí, 2023

Laugardaginn 13. maí mun Novus Habitat halda kynningarfund á Hótel Vestmannaeyjar þar sem hægt verður að fræðast um allt sem máli skiptir varðandi fasteignakaup á Spáni og Tenerife. Fundurinn fer fram á milli kl. 12 og 14.

Íslendingar hafa í auknum mæli fjárfest í fasteignum við Miðjarðarhafið, þar sem njóta má veðurblíðu nánast allan ársins hring, flatmaga á ströndinni eða kynna sér matargerð Spánverja, úr úrvals fersku hráefni á veitingastöðum innfæddra. Óþarfi er að minnast á verðlagið en lífsins gagn og nauðsynjar eru á hagstæðu verði svo ekki sé meira sagt.

Fasteignasalan Novus Habitat býður Íslendingum upp á alhliða aðstoð við val og kaup á fasteign ásamt þjónustu eftir kaupin, á íslenskri tungu.  Aðalskrifstofur Novus Habitat eru í Benijófar, suður af Alicante á Spáni en fasteignasalan sérhæfir sig í nýbyggingum á víðfeðmu svæði við suðausturströnd Spánar.

Steina Jónsdóttir

Steina Jónsdóttir er sölustjóri Íslandsdeildar hjá Novus Habitat og sinnir íslenskum viðskiptavinum fyrirtækisins. Hún hefur búið og starfað á Spáni í nítján ár og segist hvergi annars staðar vilja vera. „Hér er ekki eingöngu verið að fjárfesta í fasteigninni sjálfri því hér eru lífsgæðin mikil; birtan og loftslagið gerir okkur gott, og ekki spillir verðlagið og fersk matvaran við Miðjarðarhafið fyrir.

Steina segir fólk kaupa fasteign á Spáni af ýmsum ástæðum. Sumir vilji setjast að á meðan aðrir kaupi hús til vetrardvalar eða til að nýta í sumarleyfum fjölskyldunnar. ,,Við bjóðum eingöngu uppá nýjar eignir og spönnum stórt svæði, allt frá Denia í norðri til Mar Menor í suðri, auk Tenerife, sem margir þekkja vel, en þar erum við með framúrskarandi samstarfsaðila sem sinna landanum.

Hún segir vinsælt að kaupa íbúðir í kjörnum sem lokaðir eru af, þar sem sundlaug og garðar eru í sameign. Slíkir kjarnar eru á tveimur til fjórum hæðum og verðin misjöfn eftir hæðum, áttum og útsýni. Jarðhæðareignir hafa eigin garð og efstu hæðir eigin þakverönd. Millihæðir eru með svölum og yfirleitt ódýrustu eignirnar í kjarnanum. Í flestum tilvikum má finna helstu þjónustu í næsta nágrenni en vissulega getur vegalengdin verið misjöfn. Ég leiðbeini fólki með staðsetningu eftir helstu óskum kaupandans. Flestir vilja hafa verslun og veitingastaði í göngufæri en hjá öðrum skiptir það minna máli. Það má geta þess að auðvelt er að aka bifreið um Spán og vegakerfið mjög þægilegt. Auk þess er ódýrt og einfalt að ferðast til nágrannalanda héðan, sé fólk búið að koma sér upp heimili. Það eru góðar flugsamgöngur til flestra Evrópuborga frá Alicante, og yfirleitt á afar hagstæðu verði,“ bætir Steina við.

Steina fluttist búferlum til Spánar árið 2004 ásamt eiginmanni og tveimur dætrum sem í dag eru 28 og 22ja ára. Sú yngsta, sem er 18 ára, er fædd á Spáni. „Það var eiginlega skyndibrjálæði og ævintýraþrá á sínum tíma, að flytja til Spánar og kaupa hús. En hér líður okkur vel, ég er ein með dætrum mínum í dag og við erum óttalegir Spánverjar. Ég segi oft að þessi hugmynd hafi verið skynsamlegasta skyndibrjálæðið mitt hingað til. Hér er dásamlegt að vera og bæði heilbrigðis- og skólakerfi til fyrirmyndar. Dætur mínar hafa alltaf verið ánægðar. Við búum í litlu spænsku þorpi en hér tökum við fullan þátt í menningunni og höfum tileinkað okkur margar hefðir innfæddra. Stelpurnar eru til dæmis fermdar inn í kaþólska trú. Við tökum þátt í samfélaginu hérna, rétt eins og ef við byggjum í Reykjavík.“

Steina segir að það sé sérstaklega skemmtilegt að starfa við að þjóna Íslendingum. „Það var mikil gleði þegar markaðurinn opnaðist aftur og gjaldeyrishöftum var aflétt. Margir höfðu gengið með drauminn í maganum lengi en ekkert getað aðhafst vegna haftanna.“

Þegar hún er spurð hversu mikið fé fólk þurfi að eiga til að fara af stað í að kaupa fasteign á Spáni, svarar Steina: „Við ráðleggjum fólki að reikna með að þurfa að leggja fram 50% af kaupverðinu. Kaupendur geta sótt um veðlán en slíkt lán kemur til afgreiðslu við afsal auk þess sem bæta þarf kostnaði við kaupverðið en sá kostnaður er 10% söluskattur og gjöld sem tengjast þinglýsingu og skráningu og fleiru slíku. Nauðsynlegt er að reikna með 14% kostnaði í það heila. Vegna þessa kostnaðar og greiðsluskilmála almennt, er æskilegt að fólk reikni með að eiga 50% af kaupverði þegar farið er af stað. Síðan er hægt að fjármagna með allt að 70% veðláni, gegn greiðslumati, að sjálfsögðu. Lánið þarf að vera að fullu greitt þegar lánþegi nær 75 ára aldri. Því eldri sem við erum, því styttri er lánstíminn og afborganir hærri, eins og gefur að skilja. Við leiðbeinum viðskiptavinum í gegnum þetta ferli eins og það leggur sig og eftirsöluþjónustan okkar aðstoðar við húsgagnakaup, internettengingar og annað sem nauðsynlegt er að huga að.“ segir Steina.

Kynningarfundurinn á laugardag er öllum opinn og gestir geta kíkt í heimsókn hvenær sem er á milli klukkan 12 og 14. Einnig er í boði að bóka einkafund með Steinu með því að hafa samband við í gegnum netfangið steina@novushabitat.es eða í síma +34 615 698 766. Einnig er hægt að fá góðar upplýsingar á heimasíðunni https://novushabitat.es/is/

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Forsida 11 Tbl 2025
11. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.