Þekkingarsetur Vestmannaeyja hlaut 5.000.000 kr styrk fyrir rauðátu verkefnið
Setrid
Fundað verður í Þekkingarsetri Vestmannaeyja, Ægisgötu 2.

Þekkingarsetur Vestmannaeyja fær 5.000.000 kr styrk fyrir verkefnið “Veiðar og vinnsla á rauðátu við Vestmannaeyjar” úr Lóunni, nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina.

Í ár hljóta 25 verkefni styrk úr Lóunni. Hlutverk Lóunnar er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni á forsendum svæðanna sjálfra. Í ár var sérstaklega horft til verkefna sem komin eru af byrjunarstigi og tengjast samfélagslegum áskorunum á borð við loftslagsmál, sjálfbærni í heilbrigðis- og menntamálum og sjálfbærni í matvælaframleiðslu.

Heildarfjárhæð úr Lóu 2023 er líkt og árin áður 100 milljónir króna.

Alls bárust alls 97 umsóknir og voru þær á fjölbreyttum sviðum og viðfangsefni þeirra ólík, allt frá hugmyndum á frumstigi til stærri verkefna sem komin eru vel á veg.

Sem dæmi um verkefni sem hljóta styrk í ár eru áburðarframleiðsla, þróun matvöru úr þangi og sjávarþara á Vestfjörðum, uppbygging sjálfbærar matvælaframleiðslu á Austurlandi, þróun og vinnsla bioplasts úr hampi á Norðurlandi Eystra og samfélagsverkefnis um að nýta rafíþróttir til að efla færni á vinnumarkaði á Norðurlandi.

Verkefni í öllum landshlutum hlutu styrk og kynjahlutfall er nokkuð jafnt.

Verkefnin sem hluti styrk má sjá hér.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.