Hart hefur verið sótt að þessari grunneiningu á undanförnum áratugum í samfélagi sem tekur örum breytingum. Viðmiðin eru önnur nú en áður fyrr og meiri hætta á að einstaklingar bregði af beinu brautinni.
Vímuefnaneysla
Aukin vímuefnaneysla er þjóðarvá og fórnarlömb fíkniefnasala verða sífellt yngri. Forvarnir þurfa að byrja mjög snemma á lífsleiðinni. �?að er nauðsynlegt að spyrna fast við með aukinni fræðslu og öflugum stuðningi við fjölskylduna, til þess að koma í veg fyrir að ungt fólk ánetjist vímuefnum. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að meðferðarúrræði séu nægjanleg fyrir þá sem ánetjast vímuefnum og tryggt sé að þjónustan á þessu sviði sé markviss og gagnist öllum hópum sem þurfa á henni að halda.
Eldri borgarar
�?að er sérhverju þjóðfélagi metnaðarmál að búa sem best að eldri borgurum. Í ræðu formanns á nýafstöðnum landsfundi Sjálfstæðisflokksins boðaði hann breytingar á kjörum eldri borgara sem munu hafa mikil áhrif á kjör þeirra, þó sérstaklega þeirra sem lakast eru settir. Um er að ræða m.a. að minnka sem fyrst hinar almennu skerðingar í almannatryggingakerfinu úr um 40% í 35% og að þeir sem orðnir eru sjötugir geti unnið launaða vinnu án þess að launin skerði tryggingabætur frá Tryggingastofnun. Einnig það að ríkið tryggi öllum lágmarkslífeyri frá lífeyrissjóði, t.d. 25 þúsund krónur á mánuði.
Grundvöllur velferðar
Skattalækkanir hafa stóraukið tekjur hins opinbera og efnahagslíf þjóðarinnar stendur traustum fótum. �?að er grundvöllurinn fyrir því að hægt er að verja meira fjármangi til velferðarmála. Auk þess sem kaupmáttur heimilanna hefur vaxið jafnt og þétt. Góð og traust efnahagsstjórnun skiptir fjölskylduna miklu máli svo hún fái notið lífsgæða. Engum er betur treystandi til þess en Sjálfstæðisflokknum, að styrkja enn frekar stöðu fjölskyldunnar í landinu.
Björk Guðjónsdóttir
Skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.