Um þessa helgi eru þeir í Kaupmannahöfn og leika á tveimur stöðum.
Föstudaginn 27. apríl í verslun 12 Tóna við Fjólustræti og síðan á laugardagskvöldinu á skemmtistaðnum Skarvinum við Pilestræti.
NilFisk fóru akandi og tóku Norrænu yfir hafið og fara um á sérmerktum bíl sem vekur verulega athygli í Danmörku enda heimaland Nilfisk ryksugunnar margfrægu. Lögfræðingur Nilfisk framleiðenda í Danmörku gerði alvarlegar athugasemdir við nafn hljómsveitarinnar en ekkert hefur heyrst frá honum eftir að �?lafur Helgi Kjartansson sýslumaður sýslumaður á Selfossi svaraði bréfi lögfræðingsins.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.