Hlýtt sumar á landinu

Mánuðirnir júní til ágúst 2007 voru óvenjuhlýir um allt sunnan- og vestanvert landið, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Í Reykjavík var álíka hlýtt 2004, en þessir þrír mánuðir hafa aðeins þrisvar orðið hlýrri en nú, þ.e. 2003, 1881 og 1939. Norðaustan- og austanlands var hiti heldur lægri þó hann hafi einnig verið yfir meðallagi á þeim slóðum.

Aðeins vantaði 10 mm upp á meðalúrkomu í Reykjavík, því fyrstu 10 dagar júnímánaðar og síðustu 10 dagar ágústmánaðar voru mjög votviðrasamir en á milli var afar úrkomulítið. Á Akureyri hefur úrkoma ekki verið jafnlítil í júní til ágúst síðan 1995. Þó virðist hafa verið þurrast á úrkomusamasta svæði landsins, Suðausturlandi. Veðurstofan segir, að sú úrkoma, sem þar mældist, þætti þó dágóð í þurrkasveitum norðanlands. Úrkoma síðustu þrjá mánuði hefur mælst 163 mm á Fagurhólsmýri og er það tæpum 17 mm minna en áður hefur minnst mælst í þessum mánuðum. Úrkomumælingar á Fagurhólsmýri hófust 1921. Næstminnst var úrkoman 180 mm, sumarið 1958.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.