Mál Dala-Rafns á hendur olíufélögunum aftur í héraðsdómi

Fyrirtaka verður í dag í máli útgerðarfélagsins Dala-Rafns í Vestmannaeyjum á hendur stóru olíufélögunum þremur vegna tjóns sem útgerðarfélagið telur sig hafa orðið fyrir vegna samráðs félaganna á tíunda áratug síðustu aldar.

Þetta er í annað sinn sem málið kemur fyrir dóminn. Héraðsdómur vísaði máli Dala-Rafns á hendur Keri og Olíuverslun Íslands frá í september síðastliðnum vegna vanreifunar en Skeljungur fór ekki fram á frávísun heldur sýknu.

Hæstiréttur úrskurðaði svo í síðasta mánuði að málatilbúnaður Dala-Rafns væri nægilega skýr þannig að ekki ætti að vísa málinu frá. Felldi Hæstiréttur því frávísunarúrskurðinn úr gildi og lagði fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðfeðar.

Forsvarsmenn Dala-Rafns krefja félögin þrjú um rúmar átta milljónir króna vegna þess tjóns sem þeir telja sig hafa orðið fyrir vegna ólögmæts samráðs olíufélaganna á árunum 1996-2001.

Tveir héraðsdómar hafa þegar fallið þar sem olíufélögunum hefur verið gert að greiða skaðabætur vegna samráðs. Í öðru tilvikinu var Keri gert að greiða Sigurði Hreinssyni á Húsavík 15 þúsund krónur í skaðabætur vegna tjóns hans af samráðinu og þá voru Reykjavíkurborg dæmdar 78 milljónir króna í bætur vegna tjóns borgarinnar af völdum samráðs olíufélaganna. Bæði málin nú meðferðar hjá Hæstarétti.

 

 

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.