Höfuðkúpubraut konu með öskubakka

Kona á fertugsaldri höfuðkúpubrotnaði þegar hún var slegin í höfðið með gleröskubakka í heimahúsi í Vestmannaeyjum að morgni sunnudags, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

Konan leitaði til læknis að kvöldi sunnudags og var í framhaldi af því lögð inn á sjúkrahús vegna áverkanna. Hún var hins vegar ekki talin hættulega slösuð og er komin heim af sjúkrahúsinu. Sá sem grunaður er um árásina var handtekinn skömmu síðar á veitingastað í bænum og var í haldi lögreglu þangað til í gær.  Um er að ræða karlmann á fertugsaldri og var hann látinn laus að skýrslutöku lokinni.

Framburður aðila um atburði er mjög óljós og hefur konan ekki enn viljað leggja fram formlega kæru. Lögregla rannsakar samt sem áður málið áfram þar sem um beinbrot er að ræða.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.