Höfuð, herðar, hné og ...........

Gröfustrákarnir voru lygeglad þegar þeir hófu vinnu við nýja frystigeymslu Vinnsló í morgun. Stebbi Jónasar kom þá á hlaupahjólinu sínu, sem hann fékk í skóinn fyrir jólin 2005, og spurði um teikningarnar og framkvæmdaleyfið fyrir þessu en þá sögðu grafararnir að Binni í Vinnsló væri búin að fá þennan draum og það dyggði til þess að starta hitt yrði gert með gömlu eyjavinnubrögðunum – teikningarnar kæmu þegar þær kæmu og leyfið líka – það tvennt er bara aukatriði sögðu þeir – á meðan á þessu stóð gretti Gulli Grettis sig á bak við stærstu gröfuna þar sem hann var að næra sig á Ís með hrískúlum svo gnísti í tönnum.

 

Fleiri fleiri manns runnu sitt skeið á enda um leið og brokkið var búið.

 

Beddi á Glófaxa og Gilli Valur á Björgunni læddu sér í kaffibrúsann hjá Stjána á Emmunni og drógu þar upp grafin lax og rjómatertu sem var góð viðbót við magabeltið sem þeir höfðu tekið af Sigurjón Ingvars, sem er alveg að verða eins grannur og Palli “mjölpoki” Scheving en Jói P er ekki svipur hjá sjón þar sem að hann kúrir og minnir á gamalt þreytt þríhjól í frígír.

 

Kona í sveit hafði allt á hornum sér þegar það runnu á hana tvær grímur úr efri hillunni sonar hans en ekki hennar og nú var nýtilbúið ástarsamand í upplausn og fóstursonurinn komin í sigtið á riflinum sem henni hafði áskotnast við óvænt dauðsfall fyrri eiginmanns……

Hott hott á hesti sagði Addi í London um leið og hann skeiðaði í Vöruval að kaupa sér kremkex og flauelsgallabuxur. Við það dauðbrá Kalla í Toppnum þar sem hann sat og reyndi að temja 2 bréfdúfur sem ratað höfðu inn í Tónlistarskólann til að hlusta á Jarl og Fríðu í litlubúðinni fara saman með passíusálmana meðan þau fóru út með ruslið.

 

Friffi í Eyjabúð skoraði á Jón Óskar í snóker í hádeginu á laugardag um leið og kókosbollufjallinu Dínó dúllara var mokað út úr kjallaranum á Áhaldaleigunni en þar er nú búið að setja upp sælgætisverksmiðju með bananabragði

 

Nýjustu fréttir

„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“
Eyjalistinn boðar til félagsfundar
Góð aðsókn á fundi Eyþórs
Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum
Heimaey í dag
Besta rekstrarafkoma í 15 ár
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.