Lof og last - 5.kafli

Lof: Bolur Bolsson öðru nafni Henry Birgir Gunnarsson sem sýndi á glæsilegan hátt fram á réttmæti áður birtrar gagnrýni minnar um kommentakerfi moggabloggsins. Þakka þér. Hann tók það meira að segja fram í höfundardálki að hann hefði ekkert fram að færa en samt … SAMT náði hann efsta sæti á ömurlegasta vinsældarlista allra tíma með því að gaspra þvælu um allar fréttir.  Maður hefði nú haldið að einhverjir krónísku kommenta-sauðirnir myndu taka þetta til sín eftir afhjúpun Bolsins.. en nei, nei,  þeir eru still going strong. Burt með þetta drasl.. moggabloggið eru nógu ömurlegt fyrir.

Last: Fram fyrir að hleypa KR upp fyrir sig í Landbankadeildinni. Hvernig er hægt að vera fyrir neðan lið sem fékk 1 stig í fyrstu 6 leikjunum? Come on! Ekki það að ég haldi með Fram..  ég var bara loksins farinn að eygja gleðiefni í íslenskum fótbolta..  að “stórveldið” myndi falla. Ég fer fram á að Fram haldi áfram fram á við í framtíðinni og fari fram fyrir KR.

Lof: Maggi Kristins fyrir að vera flottastur og klára sín verkefni með stæl.  Hann hefur í það minnsta ástæðu fyrir því að fá sér þyrlu búandi í Vestmannaeyjum sem býður heimamönnum upp á uppbókað baðkar og flug á svipuðu verði og til Danmerkur.  Aftur á móti var annar ónefndur þyrlukaupandi  víst orðinn lúinn á því að keyra í heilan klukkutíma í bæinn á nýja lúxusjeppanum … í aftursætinu. Greyið.

Last: Ameríkanar í fótbolta .  Ekki nóg með að þeir nái þeim einstaka árangri að skjóta í andlitið á sjálfum sér ( sjá hér .. kemur fljótlega ) heldur eru íslenskir fóboltalýsendur að hljóma afskaplega vel miðað við kollega sína vestra. Ég held að Ameríkanar ættu að halda sig við körfubolta og að kjósa heimska menn sem forseta, þeir eru bestir í því.

Lof: Bankarnir fyrir að takast að hafa okkur endalaust að fíflum. Þeir ræna og rupla okkur um hábjartan daginn út og inn. Maður er búinn að greiða þessi seðilgjöld, greiðslugjöld, tilkynningargjöld.. svokallaðan FIT kostnað (menn náðu ekki að halda utan um öll þessi gjöld og settu eitt nafn “FIT ” yfir þetta allt saman) í mörg ár án þess að átta sig á því og hvað þá að kvarta yfir því. Við vorum líklega önnum kafin að verjast fylgjast með bankanum raðnauðga okkur með heimsins hæstu vöxtum. Bankanum er ekki bara sama um þig heldur er hann með her starfsmanna sem hefur það eitt verkefni að finna fleiri leiðir til þess að kroppa peninga af þér. Lofið er fyrst og fremst fyrir að komast upp með það. Well done! 

Last: Yfirmaður þulanna á Rúv … hver svo sem hann er. Ég þarf að standa upp og hrista mig svo mikill er bjánahrollurinn þegar ég hugsa til Ellý Ármanns með krakkann í fanginu að kynna 10 fréttir. Förum ekki nánar út í það.. og þó HÚN VAR MEÐ KRAKKANN Í FANGINU að kynna dagsskránna!!! Ok búinn. Ég aftur á móti spyr: Hver sagði já? Hver sagði ok, gerum það?   –  “Hæ, Ellý hérna.. sko.. var sko að pæla.. ég var nefnilega að eignast barn you know.. og.. þótt ég eigi milljón æðislegar vinkonur og besta besta besta mann í öllum heiminum sem gætu alveg passað.. þá var ég að pæla hvort það væri ekki æðislega kjút og lekkert að ég myndi sko halda á barninu, sem er auðvitað besta fallegasta barn í heimi, þegar ég kynni dagskránna á morgun … yrði það ekki ÆÐI, ha?  Einhver sagði já!?

Lof/last: Friðrik Ómar fyrir að vera orðinn helsti söngvari Elvis-laga á Íslandi. Jú, hann er frábær söngvari en Elvis er hann ekki greyið. Hann heldur tónleika með Elvis-lögum og hefur þrjá gestasöngvara … sem eru allir konur!?. Eina sem Friðrik Ómari vantar er dýpri rödd, syngja í anda Elvis, dekkra hár og gagnkynhneigð.. thats it, þá væri hann flottur. Hann er samt sem áður óttalegt rassgat.

Takk fyrir mig

http://swaage.blog.is/blog/swaage/

 

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokkum
Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.