Þjófstartað í tjöldun

Í kvöld barst það um Heimaey að fólk væri mætt í Herjólfsdal að merkja sér stæði fyrir þjóðhátíðartjöldin. Eins og flestir vita er ekki sama hvar sumir tjalda sínu tjaldi og eiga margir sinn fasta stað og því mikilvægt að ná að merkja sér stað sem fyrst. Gamlir Þórarar vilja síður lenda á Týsgötu og öfugt.

Mikil fjölda bar að með merkingar fyrir súlur og mikill hamagangur var í öskjunni. Þjóðhátíðnefnd mun í kvöld fjarlægja þær merkingar sem komnar eru í dalinn og segja þeir að það sé móðgun við þá sjálfboðaliða sem hafa starfað í dalnum að leyfa þeim ekki klára sína vinnu áður en merking hefst.
Þjóðhátíðarnefnd biður fólk að virða settan tíma og mun merking verða heimiluð klukkan 13:00 á morgun fimmtudag.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.