Hallgrímur í 2. sæti í Hafnarfirði

Einn Vestmannaeyingur tók þátt í fyrsta stigamóti unglinga í golfi á þessu ári, Kaupþingsmótaröðinni, en það mót var haldið á Hval­eyrarvellinum í Hafnarfirði á laug­ardag. Það var Hallgrímur Júlíusson yngri, sem varð einmitt Íslands­meistari í sínum flokki í fyrra. Hallgrímur, sem keppir í flokki 13-14 ára stráka, varð í 2. sæti í þessu móti, á 79 höggum, aðeins einu höggi á eftir sigurvegaranum, heimamanninum Ísak Jasonarsyni. Hallgrímur hefur æft vel það sem af er árinu og þessi árangur sýnir að hann er líklegur til frekari afreka í sumar.

Nýjustu fréttir

Mugison, saft í brúsa og pönsur á Skansinum
Grjóthrun við Friðarhöfn
Lægsta tilboð í svið á Vigtartorgi 10,6 milljónum yfir áætlun
Upplýsingaóreiða formanns utanríkismálanefndar
Rauðáta gæti orðið ný atvinnugrein
Lögreglan minnir á mikilvægi umferðaröryggis á Orkumótinu
Fiskibátur vélarvana við Vestmannaeyjar
Orkumótið hefst á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.