Í ár fá nemendur okkar í 7. 9. og 10. bekk fræðslufundi á vegum Grunnskóla Vestmannaeyja, lögreglunnar og Marita, forvarnarsviðs Samhjálpar. Nemendur í 7. og 9. bekk fá sína fræðslu á skólatíma, en nemendur 10. bekkjar mæta með forráðamönnum sínum á kvöldfund. Forvarnarfulltrúinn sem um ræðir hefur nú komið til okkar nokkrum sinnum og orð hans hafa fallið í góðan jarðveg hjá nemendum okkar og þeim foreldrum sem hann hefur náð til.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst