Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á loftskammbyssu í vikunni en nokkrir 15 ára drengir voru að leika sér að skjóta úr byssunni. Lögregla áréttar að skotvopnaleyfi þarf til að eiga og skjóta úr loftskammbyssu þar sem sömu reglur gilda um slík vopn, sem og önnur skottvopn. Annars var vikan með rólegra móti, ein stúlka féll í spröngunni og fótbrotnaði og var send til Reykjavíkur með sjúkraflugi, þar sem hún gekkst undir aðgerð. Þetta kemur fram í dagbókarfærslu lögreglunnar sem má lesa hér að neðan.