Nú er þjóðhátíð 2010 lokið og gestir hátíðarinnar farnir að tínast til síns heima. Hápunktur gærdagsins var brekkusöngur Árna Johnsen, sem nú naut liðsinnis Jarls Sigurgeirssonar og Sæþórs Vídó. Auk þess var textum laganna varpað upp á skjá og óhætt að segja að þessar breytingar hafi heppnast mjög vel. Aldrei hafa fleiri verið í brekkukórnum og í ár en lögregla áætlar að milli 16 og 17 þúsund hafi kyrjað Eyjalögin og aðra slagara fram að miðnætti. Í nótt rigndi svo á þjóðhátíðargesti en fram að því hafði veður verið einstaklega gott í Eyjum um helgina.