Í tilefni frétta um að breyta eigi farvegi Markarfljóts og viðbrögð ýmissa aðila og stofnanna í kjölfarið rifjar Kristinn R. Ólafsson „okkar maður í Madrid“ upp sögu sem Ási í Bæ skrifaði í bókina Skáldað í skörðin. Þar segir frá Ögmundi Ögmundssyni í Auraseli, þann galdramann sem lék sér m.a. að því að breyta árfarvegi Markarfljóts eftir eigin höfði. Brot úr sögu sem Ási ritar má lesa hér að neðan.