Karlalið ÍBV í knattspyrnu hampaði í gær sínum fyrsta titli í ár þegar liðið vann Íslandsmótið í Futsal. Í úrslitaleik mætti ÍBV Víkingi frá Ólafsvík en úrslitaleikurinn fór fram í Laugardalshöll. Yfirburðir Eyjamanna voru talsverðir í leiknum enda vann ÍBV leikinn 5:0 og það þrátt fyrir að Tryggvi Guðmundsson hafi fengið að líta rauða spjaldið í fyrri hálfleik. Í Futsal er leyfilegt að skipta inn varamanni fyrir þann sem er vísað af velli að tveimur mínútum liðnum þannig að Eyjamenn léku ekki einum færri nema í stutta stund.