Herjólfur sigldi síðari ferðina í dag en skipið hélt úr höfn rétt áðan klukkan 15:30. Brottför úr Þorlákshöfn verður 19:15 en rekstraraðili skipsins, Eimskip varaði farþega sína sérstaklega við töluverðum veltingi í ferðinni. Hins vegar er útlitið slæmt varðandi morgundaginn og hugsanlega þarf að fella niður ferð eða ferðir.