Veðurstofa Íslands varar við stormi víða um land í nótt, m.a. í Vestmannaeyjum. Samkvæmt veðurspánni byrjar að hvessa í kvöld og í nótt á að vera 20 til 24 metrar á sekúndu. Vindhraðinn á svo að ná hámarki um hádegisbil þegar Veðurstofan spáir 27 metra meðalvindhraða á Stórhöfða. Ofankomu er spáð með þessum mikla vindi en hitastig verður við frostmark.