Togarinn Bergey frá Vestmannaeyjum var dreginn til Eskifjarðar í nótt, en skipið fékk veiðarfæri í skrúfuna í gær. Óhappið átti sér stað um kl. 3 í gær. Togarinn Vestmannaey tók Bergey í tog. Ferðin gekk vel, en mjög hvasst var þó í Reyðarfirði um miðnætti og fór veðurhæðin upp í 70 hnúta.