Sigmund Jóhannsson, teiknari og uppfinningamaður er Eyjamaður ársins 2011 að mati ritstjórnar vikublaðsins Frétta. Afhendingin á Fréttapýramídanum, viðurkenningum blaðsins fyrir afrek síðasta árs fór fram í hádeginu en Sigmund hefur í gegnum árin verið frumkvöðull í öryggismálum sjómanna, auk þess sem hann var samviska þjóðarinnar um áratugaskeið í gegnum skopmyndir í Morgunblaðinu.