Stýrihópur á vegum fræðslu- og menningarráðs leggur til að farið verði í þróunarverkefni á vorönn 2012, þar sem sett verður á fót íþróttaakademía við Grunnskólann, 9. og 10. bekk. Allir nemendur 9. og 10. bekkjar sem hafa íþróttir í vali munu eiga möguleika á að velja íþróttaakademíuna sem valgrein. Þeir nemendur sem innritast í íþróttaakademíuna þurfa að skrifa undir lífsstílssamning þar sem þeim verður m.a. óheimilt að neyta vímuefna og krafa verður gerð um námsárangur og fyrirmyndarhegðun.