Áhersla lögð á smíði nýrrar ferju og aðlögun Landeyjahafnar
Nú er í gangi blaðamannafundur í Innanríkisráðuneytinu þar sem umfjöllunarefnið er Landeyjahöfn og ferjusiglingar milli lands og Eyja. Í fréttatilkynning frá ráðuneytinu kemur fram að gert sé ráð fyrir að ný ferja hefji siglingar í síðasta lagið árið 2015 og unnið sé að hugmyndum um stofnun hlutafélags um smíðina. Siglingar milli lands og Eyja verða boðnar út að nýja og tekur nýr samningur gildi 1. maí 2012 og endar þegar ný ferja kemur. Þá er til skoðunar að byggja upp rif við Landeyjahöfn sem skýlir henni fyrir sandburði og uppsetning fasts dælubúnaðar. Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér að neðan.