Eyjapeyinn Gunnar Karl Haraldsson tekur þátt í Norðurlandamóti fatlaðra í boccia um helgina. Mótið fer fram í Laugardalshöll í dag en mótið hófst í morgun með sérstaktri setningarathöfn. Þar gengu keppendur þjóðanna inn hver á fætur annarri en Gunnar Karl var fánaberi íslenska hópsins.