Goslokalag hljómsveitarinnar Brimnes var frumflutt í morgun á útvarpstöðinni Bylgjunni. Lagið er skemmtilegt, auðvelt og með viðlagi sem allir eiga að geta sungið. Lagið heitir Höldum heim og á vel við sem Goslokalag en hægt er að hlusta á lagið hér að neðan og lesa yfir textann um. Þá er lagið allt í tóntegundinni G og því auðvelt fyrir fólk að spila með, jafnvel þeir sem kunna ekkert á gítar, geta vel spilað með.