Jóhann Guðjónsson, fyrrum skipstjóri og útgerðarmaður á Þristi VE og starfsmaður á grafskipinu Vestmannaey í nokkur ár, er mikill náttúrunnandi og eru það ekki síst fuglar sem eru honum hugleiknir.
Hann snaraðist inn á ritstjórn Eyjafrétta í gær og sagði að lóan væri kominn. Hann hefði séð til hennar suður á Breiðabakka.