Safnahelgi hafin
Safnahelgin á Suðurlandi hófst í Vestmannaeyjum í gær með opnun tveggja sýninga, annars vegar ljósmyndasýning í flugstöðinni á Vestmannaeyjaflugvelli og hins vegar með opnun sýnignarinnar Íslensku þjóðsögurnar sem er myndlistarsýning Myndlistarfélags Vestmannaeyja. Núna klukkan 17:00 verður formleg opnun helgarinnar í Stafkirkju þar sem forsvarsmenn Fornritafélagsins kynna stuttlega fimm binda ritverk um sögu Noregskonunga en síðasta bindið kom út í október síðastliðinn. �?á flytja þau Balasz, Kitty og Sólveig Unnur tónlist.
Í kvöld klukkan 20:00 verður bátasafn �?órðar Rafns við Flatir formlega opnað. �?ar mun fjölmiðlakonan Edda Andrésdóttir lesa upp úr nýrri bók sinni, Til Eyja. Í kvöld verða svo tónleikar á Vinaminni klukkan 21:00 en þar koma þau fram Davíð, Siggi og Árný, Dr. Gúsi, Helga, Arnór og fleiri.
Dagskrá á laugardag og sunnudag má sjá hér að neðan.
Laugardagur 2. nóvember
Safnahús
Sýningar í Einarsstofu.
Týnda fólkið. Konur í einkaskjalasöfnum, þ.á.m. lausamennskubréf vinnukvenna sem að fengu sig lausar úr vistarböndum um aldamótin 1900. Framlag Héraðsskjalasafnsins til Norræna skjaladagsins.
Friðrik Jesson. Sýning á ljósmyndum og ljósmyndavélum úr fórum hans í tilefni af sýningu myndarinnar �?r Eyjum.
Kl. 13:00 í Einarsstofu. Erlendur Sveinsson opnar myndlistarsýningu föður síns, Sveins Björnssonar.
Kl. 13:30 í Sagnheimum. Erlendur Sveinsson forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands fjallar um myndefni í Kvikmyndasafninu sem tengist Eyjum og sýnir um 30 mín. bút úr myndinni �?r Eyjum frá 1969. Víglundur �?orsteinsson opnar síðu á Heimaslóð sem helguð er Árna símritara.
Kl. 14:30 Kaffi og meðlæti.
Kl.15:00 í Sagnheimum. Egill Helgason þáttastjórnandi Kiljunnar fjallar um jólabókaflóðið m.m.
Guðmundur Andri Thorsson les úr nýrri bók sinni.
Betel
Kl. 16.00 Styrktarfélagstónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja.
Safnahús /Sagnheimar
Kl. 20:00,Eyjapeyjar í Eldey 1971 og 1982�??, saga í máli og myndum. Ragnar Jónsson, Hörður Hilmisson og Henry Gränz segja frá.
Akóges
Kl. 21:00 Marlene Dietrich �?? Hrund �?sk Árnadóttir og Pálmi Sigurhjartarson flytja valin lög sem þessi einstaka söngkona gerði fræg um miðja síðustu öld. Aðgöngumiðar seldir í Safnahúsi og við innganginn. Aðgangseyrir kr. 2000.-
Sunnudagur 3. nóvember
Sæheimar
Kl. 16:00 Halastjörnur. Karl Gauti Hjaltason fræðir unga sem aldna um leyndardóma halastjarnanna.
Opnunartímar:
Sagnheimar og Sæheimar laugardag og sunnudag 13.00 �?? 16.00
Alþýðuhúsið Myndlistarsýning laugardag og sunnudag 13.00 �?? 16.00
Vestmannaeyjaflugvöllur laugardag og sunnudag 10.00 �?? 18.00
Bókasafn laugardag 11.00 �?? 16.00
Bátasafn �?órðar Rafns við Flatir laugardag 13.00 �?? 16.00
Surtseyjarstofa laugardag 13.00 �?? 16.00

Nýjustu fréttir

Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.