Góð byrjun dugði ekki til
ÍBV tapaði fyrir Val í dag í Olísdeild karla en lokatölur urðu 32:26. Eyjamenn byrjuðu vel í leiknum, komust í 1:5 en Valsmenn náðu að jafna metin og var jafnt á með liðunum út fyrri hálfleikinn. En undir lok hans tóku Valsmenn góða rispu og voru yfir 16:13 þegar gengið var til búningsherbergja í leikhléi.
Valsarar héldu svo áfram á sömu braut í síðari hálfleik, héldu Eyjamönnum í hæfilegri fjarlægð og juku svo forskotið á lokakaflanum.
Eyjamenn eru í þriðja sæti eftir leikinn með átta stig, með jafn mörg stig og Fram, Valur og ÍR. FH er í öðru sæti með 9 stig en á toppnum eru Haukar með 10. Neðstu tvö liðin eru svo Akureyri og HK sem virðast ætla vera í botnbaráttunni í vetur.
Mörk ÍBV: Agnar Smári Jónsson 6, Andri Heimir Friðriksson 5, Theodór Sigurbjörnsson 4, Róbert Aron Hostert 3, Magnús Stefánsson 2, Guðni Ingvarsson 2, Dagur Arnarsson 1, Filip Scepanovic 1, Matjaz Mlakar 1, Sindri Haraldsson 1.

Nýjustu fréttir

Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.