Í dag, laugardag verða mótmæli fyrir utan Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Mótmælin hefjast klukkan 16:00 en þetta eru önnur mótmælin sem haldin eru og mætti um 80 manns á fyrri mótmælin. �??Við mótmælum aðförum ríkis að spítalanum okkar en í leiðinni sýnum við stuðning við vinnu stýrihóps sem stendu rí ströngu þessa dagana. Kveikjum á friðarkertum og sendum skilaboð um að þetta sé ekki ásættanleg staða sem við erum sett í hér í Eyjum og að mannslíf séu í húfi. Fjölmennum og látum í okkur heyra,�?? sagði Inga Guðgeirsdóttir í fréttatilkynningu sem hún sendi Eyjafréttum.