Biðjum alla þá sem eru á móti niðurskurði í málefnum sem ekki eru eins alvarleg og þessi
að setjast niður með litla barninu sínu, barnabarni , frænku eða frænda og horfa á þau smá stund og spyrja sig svo þeirra spurningu , er mitt málefni meira virði en líf barna sem ekki hafa læknisþjónustu við hendina ef illa skyldi fara .
Spyrjum okkur sjálf svo í einlægni, eru mannslíf orðinn minna virði en peningar.
Við munum gera allt til að halda okkar frábæru læknum hér í eyjum og styðjum heilshugar við bakið á þeim eins og öllu starfsfólki heilbrigðisstofnunnar vestmannaeyja.
Við munum halda áfram okkar mótmælum hér í eyjum , það er kannski stærsta pressan sem við getum sett á stjórnvöld
�?g vil þakka ykkur fyrir komuna ,við höldum áfram og látum ekkert stoppa okkur.�??
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.