Heimir tekur við landsliðinu 2016
Heimir Hallgrímsson mun starfa við hlið Lars Lagerbäck í undankeppni Evrópumótsins sem hefst næsta haust. Heimir hefur verið aðstoðarþjálfari landsliðsins, undir stjórn Lagerbäck en nú munu þeir starfa hlið við hlið. Auk þess hefur verið gengið frá því að Heimir taki við landsliðinu eftir Evrópukeppnina 2016.
�??Hann hefur látið mig líða þannig að við séum að taka allar ákvarðanir saman,” sagði Hemir á fréttamannafundi í dag en frá þessu er greint á Fótbolti.net.
�??�?að að við séum báðir með landsliðið ætti ekki að skapa nein vandamál að mínu viti. �?að er gott að plana fjögur ár fram í tímann, það er samfella í hlutunum. Við erum með góðan grunn sem við getum byggt ofan á næstu árin.”
Heimir er ánægður með að fá tækifæri til að starfa við hlið Lagerback og taka við liðinu í framtíðinni. �??�?g er að sjálfsögðu ákaflega stoltur af því trausti sem ég fæ. �?g lít á það þannig að ég hafi verið góða hluti,” sagði Heimir. �??�?etta er ekki bara hrós fyrir mig heldur líka fyrir ÍBV. �?eir sáu eitthvað við mig þegar ég var 17 ára og fékk þjálfarstarf og síðan stærra og stærra starf. Nú hefur KSÍ tekið við og ég er ánægður með traustið sem ég fæ.”
�??�?að er gaman að taka þátt í þessu besta fótboltaári sögunnar á Íslandi. Karlalandsliðið er að ná sínum besta árangri til þessa, kvennalandsliðið er að ná sínum besta árangri til þessa og yngri landsliðin eru að standa sig vel. Íslensk lið náðu líka frábærum árangri í Evrópukeppni og voru einungis marki frá sæti í riðlakeppni. �?essi árangur landsliðsins er ekki síst íslenskum þjálfurum að þakka. Ísland er að ná góðum árangri í alþjóða fótbolta.”
Heimir hefur starfað sem tannlæknir undanfarin ár en hann segist ætla að minnka við sig á þeim vettvangi. �??�?g mun starfa eitthvað áfram við þær til að byrja með en það mun minnka,” sagði Heimir um tannlækningarnar.

Nýjustu fréttir

„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“
Eyjalistinn boðar til félagsfundar
Góð aðsókn á fundi Eyþórs
Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum
Heimaey í dag
Besta rekstrarafkoma í 15 ár
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.