Mikilvægur sigur hjá Erlingi
Erlingur Richardson og lærisveinar hans í austurríska félaginu Westwien unnu í dag nauman en mikilvægan sigur á Fivers Margareten í kvöld, 30-28. Margareten hefði komist á topp deildarinnar með sigri í kvöld en varð að játa sig sigrað á heimavelli eftir að hafa verið með þriggja marka forystu í hálfleik, 16-13. Westwien er svo í þriðja sæti deildarinnar með nítján stig, einu stigi á eftir Fivers. Alpla Hard er á toppnum með 21 stig eftir þrettán umferðir. Hornamaðurinn Konny Wilczynski, fyrrum leikmaður Füchse Berlin, skoraði níu mörk í kvöld og var markahæstur. Vyatautas Ziura, annar austurrískur landsliðsmaður, skoraði níu mörk fyrir Margareten.
Westwien hefur verið á góðu skriði að undanförnu og aðeins tapað einu stigi í síðustu átta deildarleikjum sínum.

Nýjustu fréttir

Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.