Vegna fréttar á forsíðu Eyjafrétta og ummæla Elliða Vignissonar, bæjarstjóra, vill Ágúst �?skar Gústafsson, heimilislæknir og aðili í starfshópi um fæðingarþjónustu í Vestmannaeyjum, koma því á framfæri að starfshópurinn skilaði af sér tillögum til ráðuneytis í byrjun nóvember. Elliði hafi því ekki haft rétt fyrir sér þegar hann sagði að hóparnir væru ekki búnir að skila af sér tillögum.
Ummæli Elliða voru þessi:
�??Nefndirnar eru enn ekki búnar að skila af sér en ég geri ráð fyrir að þær geri það á næstu dögum,�?? en fréttin birtist á forsíðu Eyjafrétta 20. nóvember síðastliðinn.
Kristján �?ór Júlíusson, heilbrigðisráðherra skipaði tvo samstarfshópa. Annar hópurinn átti að taka fyrir almennt heilbrigðisþjónustu í Vestmannaeyjum og átti að skila tillögum 15. nóvember. Hinn hópurinn átti að taka fyrir framtíðarskipulag fæðingarþjónustu í Vestmannaeyjum og átti að skila tillögum 1. nóvember.