�?egar veðrið lætur illa, truflast samgöngur við Eyjar. Áætlanir ganga úr skorðum. – Jólagjafablað Eyjafrétta átti að koma út í dag en gerir ekki. Blaðið er fjölbreytt og efnisríkt og stórt á okkar mælikvarða, eða 40 blaðsíður. �?að var því tekin sú ákvörðun að þessu sinni að fá blaðið prentað í prentsmiðju Morgunblaðsins, sem spænir prentunina í gegn á klukkutíma. Eftir að prentun Morgunblaðsins lauk í nótt voru Eyjafréttir prentaðar og um kl. 6 í morgun var prentun á blaðinu lokið. Var þá ekið með það út á flugafgreiðslu Flugfélagsins Ernis, sem hugmyndin var að flygi með það til Eyja. Ekki gaf til flugs og litlar líkur á að flugfært yrði, allavega framan af degi. Blaðið var því tekið af afgreiðslu Ernis og ekið með það á afgreiðslu Herjólfs í Reykjavík. Flutningabíllinn fór þaðan til �?orlákshafnar í morgun með blaðið og annan flutning sem fara á til Eyja, þar sem til stóð að Herjólfur sigldi til �?orlákshafnar í morgun. �?eirri siglingu hefur verið frestað nokkrum sinnum í dag vegna of mikillar ölduhæðar á siglingaleiðinni og ferðin síðan slegin af. �?að er því útséð með að Eyjafréttir komi út í dag, heldur frestast til morguns. Við þessu er ekkert að gera annað en bölva í hljóði og sætta sig náttúruöflin. Jólagjafablað Eyjafrétta fer því í dreifingu í Eyjum á morgun, fimmtudag. Hinsvegar ættu áskrifendur blaðsins á meginlandinu að fá blaðið í hendur í dag eða morgun, þar sem það fór á Póstmiðstöðina í Reykjavík í morgun. Og svo verður blaðið komið til áskrifenda á netinu í dag.