Karlalið ÍBV mætir Haukum2 í 16 liða úrslitum Coca Cola bikarkeppninnar en dregið var í hádeginu. Eyjamenn hefðu getað fengið sterkari andstæðing en öll átta úrvalsdeildarfélögin eru í 16 liða úrslitum. Aðeins einn úrvalsdeildarslagur fer fram, Akureyri tekur á móti HK en liðin sitja í tveimur neðstu sætum Olísdeildarinnar. Leikirnir í 16-liða úrslitum eiga að fara fram sunnudaginn 8. desember en líklegt er að tveir af þessum leikjum fari fram síðar þar sem ÍBV sækir FH heim í Olísdeildinni laugardaginn 7. desember.
16-liða úrslitin:
Akureyri-HK
Grótta-Selfoss
ÍH-FH
Víkingur-Haukar
Valur 2-Valur
Haukar 2-ÍBV
Afturelding-Fram
Völsungur-ÍR