Lögreglumenn söltuðu götur
Lögreglumenn tóku sér skóflu í hönd á þriðjudagskvöldi og hófust handa við að bera salt á gatnamót í Vestmannaeyjum. Launhált er á þessum slóðum og töldu lögreglumenn öruggast að saltbera göturnar til að koma í veg fyrir að ökumenn lentu í vandræðum vegna hálkunnar.
Vestmannaeyjabær hefur komið upp saltkössum á nokkrum stöðum við gatnamót í bænum sem fólk getur notað ef hálka gerir vart við sig. Pétur Steingrímsson, varðstjóri hjá Lögreglunni í Vestmannaeyjum, sagði í samtali við fréttastofu að lögreglumenn hefðu nýtt þessa aðstöðu til að salta gatnamót. Hann sagði að lofthiti væri yfir frostmarki en hálka á götum sem fólk yrði ekki endilega vart við, fyrr en það gæti verið um seinan. �?ví hefðu lögreglumenn tekið til við að salta. Pétur hvatti fólk til að nýta sér það salt sem bærinn hefur komið fyrir og bera það á götur í hálku. �?annig gætu bæjarbúar aukið umferðaröryggi í bænum.

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.