Safnahússdagur í dag
Í dag er Safnahússdagur. Af því tilefni verður boðið upp á skemmtilega dagskrá í Safnahúsinu við Ráðhúströð og hefst dagskráin klukkan 12:00 með sögu og jólagraut í Sagnheimum. Dagskrá dagsins má sjá hér að neðan.
Kl. 12:00 – 13:00 Saga og jólagrautur í Sagnheimum. Matarkistan Vestmannaeyjar, ofgnótt eða skortur? Hefur matarhefð Eyjamanna sérstöðu og ef svo er, í hverju er hún fólgin og hvernig nýtum við okkur það? Guðrún Hallgrímsdóttir matvælaverkfræðingur hjá Reykjavíkur Akademíjunni varpar ljósi á söguna og fjallar um breytingar sem fylgja nýjum lífsstíl. Dagskráin er styrkt af Menningarráði Suðurlands og Safnaráði.
Kl. 13:00 – 16:00 Síðasti ljósmyndadagur ársins í Ingólfsstofu. Smákökur með kaffinu í tilefni dagsins.
Kl. 17:00 Opnun listaverkasýningar Sigurfins Sigurfinnssonar í Einarsstofu. Auk olíumynda eru á sýningunni sýnishorn af öðrum verkum listamannsins. Sýningin verður opin á opnunartíma Safnahúss til áramóta og á sunnudögum kl. 13 – 16
Allir hjartanlega velkomnir!

Nýjustu fréttir

Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.