�?tgáfuhóf á �?tlendingi heima í Eymundsson í dag
Heimildamyndin �?tlendingur heima – uppgjör við eldgos sem frumsýnd var á goslokum við góðar undirtektir er nú komin á DVD og var þýdd á sex tungumál við það tilefni. �?essi heimildamynd er ólík öðrum heimildamyndum sem gerðar hafa verið um gosið því hún fjallar um tilfinningar; hvernig fólkinu leið á meðan á gosinu stóð, hvernig börnunum leið, Noregsferð Vestmannaeyjabarnanna og hvernig þeir sem fluttu ekki til baka hafa liðið.
Í dag verður útgáfuhóf í Pennanum/Eymundssyni milli kl. 14-16 og verða framleiðendur myndarinnar, Jóhanna Ýr Jónsdóttir og Sighvatur Jónsson á staðnum. Sýna þau áður óbirt efni frá tökum myndarinnar, myndir frá Sigmari Pálmasyni og ætla viðmælendur úr myndinni að kíkja við líka ef gestir vilja spjalla við þau.
Myndin er á 20% afslætti um helgina og er þetta tilboð eingöngu hér í Vestmannaeyjum.
Endilega kíktu við í Pennann/Eymundsson í dag.
Fréttatilkynning.

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.