�?ér er boðið í bíó
Í Kvikmyndasafni Íslands er varðveitt um 9 klukkutíma kvikmyndaefni um sögu og mannlíf í Vestmannaeyjum á 20. öld. Átthagafélagið Heimaklettur stóð fyrir því að efnið var sett saman og fékk Friðrik Jesson og Svein Ársælsson til að annast verkið. Hluti af efninu er eldri, m.a. frá Kjartani Guðmundssyni og Lofti Guðmundssyni. Í samstarfi við Kvikmyndasafnið er nú unnið að því að bera kennsl á þá einstaklinga sem bregður fyrir í þessari stórkostlegu samantekt.
Á Safnahelgi var sýndur um hálftíma bútur af myndinni �?r Eyjum sem Sveinn Ársælsson og Friðrik Jesson tóku upp að mestu, en Vilhjálmur Knudsen setti saman árið 1969. �?tlunin var að sýna mynd Vilhjálms í heild sinni en það verður að bíða betri tíma.
Í þess stað verður veitt innsýn í hið 9 klukkutíma myndefni með sýnishornum frá Friðriki og Sveini og endað á stuttmynd Njáls �?óroddssonar um vetrarvertíðina í Eyjum. Samtals tekur sýningin um 90 mínútur. Sýningin hefst klukkan 13:00 í dag, laugardaginn 28. desember.
Boðið er upp á kaffi og spjall eftir sýningu.

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.