Lifnaði yfir Moyes þegar minnst var á Vestmannaeyjar
Magnús Már Einarsson, ritstjóri Fótbolta.net skrifar skemmtilegan pistil á vefnum um för sína á Old Trafford, hvar Juan Mata var kynntur sem nýr leikmaður Manchester United á blaðamannafundi með knattspyrnustjóranum David Moyes. Magnús var að skrifa um nýja leikmanninn fyrir vef sinn en langaði greinilega að heyra aðeins í enska knattspyrnustjóranum, sem lék um tíma með Knattspyrnufélaginu Tý í Vestmannaeyjum. Ekki gafst færi á því á sjálfum blaðamannafundinum en fyrir tilviljun hitti Magnús á hann stuttu síðar.
�??Moyes sýndi þó allt annað viðmót þegar undirritaður rakst á hann nokkrum mínútum síðar. Eftir fundinn var fréttamönnum sagt að yfirgefa fundarherbergið strax og flestir héldu á brott. �?g var að klára að skrifa síðustu fréttirnar inn á Fótbolta.net svo ég tyllti mér með nokkrum spænskum blaðamönnum í afgreiðsluna á æfingasvæðinu. Moyes labbaði þar um og ræddi við konurnar í afreiðslunni áður en hann hvarf á braut. �?g hafði nú ekki kjark í að ráðast á hann þá en þegar hann kom aftur fram með fjölmiðlafulltrúanum og rölti framhjá skaut ég á hann: ,,David, have you ever been to Westman Islands in Iceland?�??
�?á lifnaði heldur betur yfir kappanum en hann dvaldi í nokkra mánuði í Vestmannaeyjum á sínum yngri árum. Hann gaf sér tíma til að ræða dvölina í Vestmannaeyjum, sagðist hafa verið 18 eða 19 ára á þeim tíma og að hann hafi notið dvalarinnar en þar hefði hann hjálpað til við þjálfun yngri flokkanna.
Knattspyrnustjórinn virkaði afar geðþekkur, talaði um lífið í Eyjum, að faðir hans væri Íslandsvinur og spurði mig meðal annars hvar ég ætti heima á landinu. �?g svaraði því og spurði svo hvort það væri hægt að fá stutt ummæli frá honum um Íslandsdvölina. �?á dró aðeins úr kallinum, hann sagðist ekki eiga tíma í slíkt núna en lofaði að gefa mér viðtal síðar. �?g tippa á að það verði aldrei. Moyes kvaddi hins vegar vingjarnlega áður en hann hélt för sinni áfram. Geðþekkur og kurteis maður.�??

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.