Eyjamenn borga hæstu veiðigjöldin
Veiðigjöld á hvern íbúa í Vestmannaeyjum er sextán sinnum hærri en í Reykjavík. �?etta kemur fram í frétt á vefnum T24.is en þar er greint frá skriflegu svari fjármálaráðherra við fyrirspurn um skatttekjur ríkissjóðs en íbúar í Vestmannaeyjum greiða hæstu veiðigjöldin, þá íbúar á Höfn í Hornafirði og svo í Grindavík.
�??Árið 2012 námu veiðigjöld um 332 þúsundum króna á hvern íbúa í Vestmannaeyjum sem er nær 302 þúsund króna hækkun frá 2009. Hækkun veiðigjaldsins á hvern íbúa á Höfn í Hornafirði var 218 þúsund og í Grindavík nær 182 þúsund krónur,�?? segir jafnframt í fréttinni.
Í annarri frétt á sama vef segir jafnframt að íbúar í Vestmannaeyjum greiði mest í tekjuskatt samkvæmt sama svari fjármálarháðherra. �??Hver Eyjamaður greiddi að meðaltali liðlega 521 þúsund krónur í tekjuskatt til ríkisins árið 2012 sem er um 60% hækkun frá árinu 2009. Hver Garðbæingur greiddi liðlega 409 þúsund í tekjuskatt árið 2012 og í Fjarðarbyggð nam tekjuskattur á hvern íbúa um nær 507 þúsund krónum. Seltjarnarnes er í fjórða sæti þegar kemur að tekjuskatti á hvern íbúa,�?? segir í fréttinni.
�?á er bara spurning, hversu mikið af þessum fjármunum skilar sér til baka?

Nýjustu fréttir

Herjólfur stefnir á eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis
Laxey sækir um leyfi fyrir 9.300 fermetra seiðaeldisstöð
Myndband: Gróðurvinin Gaujulundur
Anna Rós og Einar á nýju skólaári hjá Grv
FIFA Arena gæti kostað bæinn allt að 24 milljónir
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar fyrri hluta dags
Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðurlandi
ÍBV þurfti að sætta sig við jafntefli gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.