ÍBV var rétt í þessu að vinna sinn annan bikar í dag. Fjórði flokkur kvenna vann í morgun bikarinn í úrslitaleik gegn �?ór/KA en strákarnir í fjórða flokki fylgdu eftir titli stelpnanna með því að leggja ÍR að velli með sannfærandi hætti 27:17. Eyjamenn höfðu mikla yfirburði í leiknum og lýsendur á
SportTV.is, þar sem hægt er að fylgjast með leikjunum, höfðu réttilega á orði hvað Eyjaliðið væri vel spilandi og liðsheildin sterk. Strákarnir hreinlega yfirspiluðu ÍR í seinni hálfleik og ljóst að í liðinu er mikill efniviður fyrir framtíðina.
�?jálfari flokksins, Stefán Árnason fygldi einnig í fótspor föður síns, Árna Stefánssonar sem stýrði liði FH til sigurs fyrr í dag en Árni starfaði á sínum tíma fyrir ÍBV og á stóran þátt í uppbyggingu yngri flokka félagsins í handbolta. �??�?að var gaman að sjá karlinn í Höllinni og gaman að sjá hann vinna. �?g gat ekki annað en fylgt því eftir,�?? sagði Stefán í viðtali á
SportTV.is eftir leikinn
�??�?etta var líklega einn af okkar bestu leikjum að því leytinu að allir leikmenn áttu góðan leik. Við vorum tilbúnir í leikinn, vorum rólegir og við vorum að fá góð færi í sókninni. Varnarleikurinn var gífurlega vel útfærður. Menn lögðu sig alla í þetta og gaman að sjá hvernig strákarnir mættu stemmndir.�??
�?að vakti athygli í leiknum hversu sterka liðsheild Eyjaliðið er með?
�??Já og það er okkar stærsti kostur, hvað hópurinn er sterkur. �?að eru margir góðir leikmenn í þessum hópi, menn á bekknum sem geta komið inn, þannig að við erum með mikla breidd en samt eru menn óeigingjarnir og finna alltaf besta færið. Liðsheildin vann þennan leik, við unnum þetta saman.�??
Mörk ÍBV: Friðrik Hólm 8, Logi 6, Ágúst 5, Breki 2, Ingvar 2, Darri 2, Elliði 3.
Varin skot: Andri 14.
Friðrik Hólm Jónsson var svo valinn maður leiksins.
Nú er að hefjast þriðji úrslitaleikur ÍBV í dag en allir leikirnir fara fram í Laugardalshöll og eru í beinni útsendingu á
SportTV.is.