Fundur var í dag á sjúkrahúsinu þar sem farið var yfir reikninga sem þarf að greiða. Sumir reikningar eru nokkurra ára gamlir og þolinmæði margra fyrirtækja og einstaklinga hér í Vestmannaeyjum sem og í Reykjavík alveg ótrúleg. Hversu lengi hún heldur er erfitt að spá fyrir um. Á fundinum kom fram að 6 milljónir eru útistandandi í skuldum við stofnunina, í ógreiddum komugjöldum, rannsóknargjöldum, osfrv fyrir síðustu 2-3 árin.
Fyrir utan bráðatilfelli veit fólk oftast að það er að fara til læknis, í blóðprufu eða í myndgreiningu. Líkt og fólk veit að það er að fara til farandslækna sem koma hingað og einhverra hluta vegna lenda aldrei í því að reikningur sé skuldfærður?
Hægt er að greiða reikninga í heimabanka eða alla virka daga hjá móttökuritara á 1.hæð (heilsugæslu). Einnig er hægt að semja um greiðslur hjá skrifstofu.
Hægt er að nálgast allar upplýsingar um komugjöld og önnur gjöld á
www.sjukra.is.
Með von um góð viðbrögð.
Framkvæmdarstjórn HSV