Hljómsveitirnar Mammút, Kaleo og Skítamórall verða allar á �?jóðhátíð Vestmannaeyja 2014 en í ár fagnar hátíðin 140 ára afmæli sínu, eins og fram kemur í tilkynningu frá forsvarsmönnum hátíðarinnar. Af því tilefni verður dagskráin einstaklega glæsileg eins og tilkynningar á komandi vikum munu sýna.
�??Mammút voru sigursæl á Íslensku Tónlistarverðlaununum með stórkostlega plötu sína Komdu til mín Svarta Systir sem vann fyrir plötu ársins, Salt valið lag ársins og plötu-umslag ársins. Kaleo voru sigursælir á Hlustendaverðlaunum Bylgjunnar, FM957 og X-ins977 þ.s þeir unnu sem nýliði ársins, söngvari ársins og plata ársins. Skítamóralsmenn eru mættir aftur til leiks, Einar Ágúst kominn heim og frábært nýtt lag byrjað í spilun, lag sem þeir unnu með Loga Pedro úr Retro Stefson & Highlands. Mammút og Kaleo eru að koma fram á �?jóðhátíð í Eyjum í fyrsta sinn meðan Skítamórall hafa stigið á svið í Dalnum margoft,�?? segir í tilkynningunni.
Forsala miða hefst á
Dalurinn.is 14. apríl næstkomandi.